|
Aðalfundur EFSA Iceland 2009 Aðalfundur félagsins var haldinn að Baldursgötu 14 þann 20. mars. Fundargerð fundarins má lesa hér á heimasíðunni undir "Fundargerðir/Aðalfundir" Aðalfundur EFSA Iceland 2009 / EFSA Iceland General meeting Ágætu félagar. Hér með er boðað til aðalfundar EFSA Ísland fyrir árið 2009 laugardaginn 20. mars nk. að Baldursgötu 14, 2. hæð, Reykjavík (fyrir ofan veitingarhúsið "Þrír frakkar"), og hefst fundurinn kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. Kosning fundarstjóra og fundarritara. Skýrsla formanns. Reikningar liðins starfsárs. Kosning stjórnar. Ákvörðun um árgjald. 2. Önnur mál. Evrópurmót EFSA í báta og línukeppni frá Dalvík 8.-15. maí 2010. Styrkir til félaga EFSA vegna Evrópumótsins á Dalvík. Erlend EFSA mót. Tegundamót í Albufeira Algrave, Portúgal dagana 3. - 5. september, strandveiðimót í Pwllheli, Wales í nóvember 2010. EFSA Ísland innanfélagsmót og strandveiðimót 2010. Inntaka nýrra félaga. Annað. Við viljum minna á að skráningafrestur fyrir tegundamótið í Albufeira Portúgal 3.-5. september lýkur þann 28. febrúar n.k. Í mótinu verður veidd fisktegundin Bream. Mótsgjald er 200 evrur og miði á lokahóf er 50 evrur. Fundur var haldinn laugardaginn 13. febrúar í undirbúningsnefnd vegna evrópumótsins á Dalvík í vor. Sjá má fundargerðina hér á síðunni undir "fundargerðir/fundir undirbúningsnefnda". Þar var meðal annars ákveðið að gefa félögum EFSA Íslandi frest á skráningu fram yfir aðalfund félagsins sem áætlað er að halda í mars. Þar verður tekin ákvörðun um styrkveitingar til félaga EFSA Íslandi vegna mótsins. Við viljum einnig benda Íslenskum félögum á að íslensk þýðing veiðireglna mótsins er að finna hér á heimasíðunni undir flipanum Dalvík 2010. Almennar veiðireglur EFSA er svo einnig að finna hér til hliðar undir "reglur" |