Innanfélagsmót EFSA 2019 • Ólafsvík 31. ágúst • Úrslit |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Miðvikudagur, 04 September 2019 13:13 |
Innanfélagsmót EFSA Íslands í bátakeppni 2019 var haldið frá Ólafsvík laugardaginn 31. ágúst sl. með þátttöku fjögurra veiðimanna sem kepptu á einum báti.
Allar tegundir töldust til stiga og gaf hver fiskur eitt stig. Að auki fékk veiðimaður 15 stig fyrir hverja tegund. Alls veiddust 170 fiskar af sex tegundum; 81 þorskur, 55 ufsar og 27 lýsur. Af öðrum tegundum veiddust 7 fiskar; ýsa, sandkoli og flundra.
Stigahæstur karla varð Helgi Bergsson með 62 fiska, 6 tegundir og 152 aflastig. Í öðru sæti varð Gunnar Jónsson með 43 fiska, 5 tegundir og 118 aflastig. Í þriðja sæti varð Þórir Sveinsson með 46 fiska, 4 tegundir og 106 aflastig.
Eitt nýtt tegundamet EFSA Íslands var sett í mótinu eða flundra sem vóg 860 grömm, 42,04 cm að lengd og 24,02 cm að ummáli. Veiðimaður Helgi Bergsson.
Fresta varð brottför úr höfn vegna norðan kalda, en þegar líða tók á morguninn rættist úr veðri og í lok veiðidags var komið blíðviðri og stéttur sjór.
|
|
Innanfélagsmót EFSA 2019 frá Ólafsvík laugardaginn 31. ágúst |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Miðvikudagur, 28 Ágúst 2019 20:58 |
Innanfélagsmót EFSA Ísland í sjóstöng í bátakeppni 2019 verður haldið laugardaginn 31. ágúst frá Ólafsvík. Bátakeppnin er stigamót og keppt eftir keppnisreglum í bátakeppni EFSA HQ og heimilt að veiða með 2 krókum. Allar tegundir teljast til stiga.
Dagskrá laugardaginn 31. ágúst:
Kl. 07:30 Keppendur mæta á bryggju.
Kl. 08:00 Lagt úr höfn.
Kl. 09:00 Veiðar hefjast.
Kl. 15:00 Veiðum hætt.
Kl. 17:00 Bátar skulu vera komnir að bryggju.
Þátttökugjald og skráning. Félagsmenn EFSA Íslands greiða ekkert keppnisgjald. Utanfélagsmenn greiða keppnisgjald 11.000 kr. Skráning hjá Þóri Sveinssyni sími 896 3157/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hjá Helga Bergssyni sími 867 3601/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Skráningarfrestur er til kl. 20:00 fimmtudaginn 29. ágúst 2019. Mótsstjórn skipar stjórn EFSA Ísland. Allir fiskar gefa 1 stig og gefin eru 15 stig fyrir hverja tegund.
|
Íslandsmeistaramót EFSA í strandveiði 2019. EFSA Iceland Shore Championship 2019 |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Þriðjudagur, 30 Júlí 2019 18:10 |
Íslandsmeistaramót EFSA Íslands í strandveiði 2019 verður haldið 3. og 4. ágúst frá Þykkvabæ og Þorlákshöfn.
Laugardagur 3. ágúst – Þykkvabær
Veitt frá kl. 10:00 til kl. 15:00.
Sunnudagur 4. ágúst – Þorlákshöfn
Veitt frá kl. 09:00 til kl. 14:00.
Þátttökugjald 3.000 kr.
Mótið er fyrsta mótið af tveimur mótum til Íslandsmeistara EFSA í strandveiði fyrir árið 2019. Staðsetning og tímasetning annars mótsins verður tilkynnt síðar. Veitt verður eftir reglum EFSA og heimilt að veiða með tveimur krókum.
Þátttaka í mótið tilkynnist fyrir kl. 18:00 föstudaginn 2. ágúst til Paul Fawcett í síma 893 2362/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða til Þóris Sveinssonar í síma 896 3157/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Verðlaun verða veitt fyrir 1., 2. og 3. sætið, stærsta (lengsta) fiskinn og stærsta flatfiskinn fyrir samtals skor úr báðum mótunum.
English version.
EFSA Iceland Open Shore Championship 2019 will be held from Thykkvabaer and Thorlakshöfn, South Iceland. To be fished by EFSA rules with hooks.
Programme:
Saturday 3 August – Thykkvabaer, South Iceland.
Fishing from 10:00 to 15:00.
Sunday 4 August – Thorlakshöfn, South Iceland.
Fishing from 09:00 to 14:00.
Registration before Friday 2nd August at 18:00 to Paul Fawcett, tel. 8932362 and Thorir Sveinsson, 8963157. Entry fee ISK 3.000.
The Shore Championship is one of two EFSA Iceland Open Shore Championships to be held this summer.
|
Íslandsmeistaramót EFSA 2019 • Ólafsvík 15. - 16. júní • Úrslit |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Miðvikudagur, 19 Júní 2019 17:54 |
Íslandsmeistaramót EFSA Íslands í bátakeppni 2019 var haldið laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. júní sl. frá Ólafsvík með þátttöku sex veiðimanna sem kepptu á einum báti; fimm karlar og ein kona. Áhersla var lögð á að veiða þorsk, sem flokkaður var í þrjá lengdarflokka 50 cm og minni sem gaf 3 stig, 51-75 cm sem gaf 7 stig hver fiskur og þorskur stærri en 76 cm sem gaf 12 stig. Allar aðrar tegundir töldust einnig til stiga og gaf hver fiskur 3 stig. Að auki fékk veiðimaður 15 stig fyrir hverja tegund.
Alls veiddust 375 fiskar þar af 292 þorskar, flestir í stærsta stærðarflokknum eða 166 stk. og 110 stk. í milliflokknum. Af öðrum tegundum veiddust 83 fiskar; ufsi, ýsa, lýsa, karfi, steinbítur, langa, sandkoli og flundra. Stærsti þorskurinn var 107 cm, veiðimaður Sigríður Rögnvaldsdóttir og stærsti ufsinn var 117,5 cm., veiðimaður Sigríður Rögnvaldsdóttir.
Stigahæstur karla og þar með Íslandsmeistari 2019 varð Helgi Bergsson með 200% skor, 98 fiska og 962 aflastig. Í öðru sæti varð Kristbjörn Rafnsson með 113,41% skor, 63 fiska og 540 aflastig. Í þriðja sæti varð Ólafur Jón Guðmundsson með 106,6% skor, 56 fiska og 512 aflastig.
Íslandsmeistari kvenna varð Sigríður Rögnvaldsdóttir með 130,37% skor, 67 fiska og 610 aflastig.
Veitt voru einnig verðlaun fyrir efsta sætið í 2ja manna sveit og fyrir stærsta fiskinn í einstökum tegundum.
Einmuna blíða var báða veiðidaganna, blanka logn, ekki ský á himni og skartaði Snæfellsjökull allri sinni dýrð baðaður ljóma sólarinnar. Haft var að orði að sjaldan hafi veiðst jafn margir stórir fiskar í mótum félagsins og var fjöldi stórra fiska yfir 56 cm. að lengd alls 280 eða 75% af fjölda fiskanna. |
Íslandsmeistaramót EFSA 2019 • Ólafsvík 15. - 16. júní |
|
|
|
Skrifað af Administrator
|
Sunnudagur, 09 Júní 2019 16:25 |
Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið hefur fellt úr gildi ákvörðun Fiskistofu frá 9. janúar 2019 að synja EFSA Íslandi um vilyrði fyrir skráningu afla á opinberum sjóstangaveiðimótum árið 2019. Þetta þýðir að okkur er heimilt að veiða í sumar. Ákveðið hefur verið að halda Íslandsmeistaramót EFSA Íslands í bátakeppni laugardaginn 15. og sunnudaginn 16. júní nk. frá Ólafsvík og hefst mótið með mótssetningu kl. 20:00 föstudaginn 14. júní nk. Bátakeppnin er stigamót þar sem keppt er til Íslandsmeistara EFSA Ísland 2019. Keppt verður eftir keppnisreglum í bátakeppni 2019. Áhersla verður lögð á að veiða þorsk, en aðrar tegundir telja einnig til stiga.
Dagskrá:
Föstudagur 14. júní Mótssetning
kl. 20:00 Mótsgögn afhent.
Laugardagur 15. júní Íslandsmeistaramót (bátakeppni)
kl. 06:30 Keppendur mæta á bryggju.
kl. 07:00 Lagt úr höfn.
kl. 08:00 Veiðar hefjast.
kl. 14:00 Veiðum hætt.
kl. 16:00 Bátar skulu vera komnir að bryggju.
Sunnudagur 16. júní Íslandsmeistaramót (bátakeppni)
kl. 06:30 Keppendur mæta á bryggju.
kl. 07:00 Lagt úr höfn.
kl. 08:00 Veiðar hefjast.
kl. 14:00 Veiðum hætt.
kl. 16:00 Bátar skulu vera komnir að bryggju.
kl. 20:00 Verðlaunaafhending.
kl. 21:00 Lokahóf.
Skráning hjá Þóri Sveinssyni sími 896 3157/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða hjá Helga Bergssyni sími 867 3601/netfang:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
. Skráningarfrestur er til kl:18:00 miðvikudaginn 12. júní 2019.
Stigagjöf. Allir fiskar telja til stiga. Þorskur 0-55 cm. gefur 3 stig, þorskur 56-75 cm. 7 stig, þorskur 76 cm. og stærri 12 stig. Allir aðrir fiskar gefa 3 stig og gefin eru 15 stig fyrir hverja tegund.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Endir >>
|
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL |