EFSA Ísland úrslit móta í maí 2020. EFSA Iceland Open May 2020 results. Prenta út
Skrifað af Administrator   
Miðvikudagur, 03 Júní 2020 22:12

Íslandsmeistaramót EFSA 2020 • Ólafsvík 29. - 30. maí • Úrslit
Íslandsmeistaramót EFSA Íslands í bátakeppni 2020 var haldið föstudaginn 29. og laugardaginn 30. maí sl. frá Ólafsvík með þátttöku sjö veiðimanna sem kepptu á tveimur bátum. Mótið var hugsað sem æfingarmót fyrir Evrópumótið í tegundaveiði sem haldið verður í lok maí 2021 frá Ólafsvík. Áhersla var lögð á að veiða þorsk og ufsa, sem flokkaður var í fjóra lengdarflokka 35-55 cm sem gaf 2 stig hver fiskur, 56-75 cm sem gaf 7 stig, 76-100 cm sem gaf 14 stig og fiskar 101 cm og stærri sem gaf 28 stig. Engar aðrar tegundir en þorskur og ufsi töldust til stiga.
Alls veiddust 823 fiskar þar af 626 þorskar og 197 ufsar, flestir í tveimur minnstu stærðarflokknum en einungis 63 í tveimur stærstu stærðarflokkunum. Stærsti þorskurinn var 109 cm, veiðimaður Þórir Sveinsson og stærsti ufsinn var 107 cm, veiðimaður Helgi Bergsson.
Stigahæstur og þar með Íslandsmeistari 2020 varð Helgi Bergsson með 200% skor, 206 fiska og 1.011 aflastig. Í öðru sæti varð Kristbjörn Rafnsson með 163,55% skor, 116 fiska og 654 aflastig. Í þriðja sæti varð Skarphéðinn Ásbjörnsson með 160,78% skor, 103 fiska og 610 aflastig.
Veitt voru einnig verðlaun fyrir efsta sætið í 2ja manna sveit, veiðimenn Þórir Sveinsson og Gunnar Jónsson með samanlagt með 274,39 stig, 271 fisk og 995 aflastig.
Fræsingur var báða veiðidagana sérstaklega fyrri veiðidaginn í Íslandsmeistaramótinu en fresta varð brottför úr höfn þar til síðdegis á föstudeginum að róið var kl. 16:00 og veitt til kl. 22:00. Veðrið hafði þó ekki áhrif á veiðina en aðallega var veitt undan Gufuskálum og Hellissandi í skjóli fyrir suðaustan áttinni norðanmegin á Snæfellsnesi og fyrir suðvestan áttinni sunnanmegin.
Innanfélagsmót EFSA 2020 • Ólafsvík 31. maí • Úrslit
Innanfélagsmót EFSA Íslands í bátakeppni 2020 var haldið sunnudaginn 31. maí sl. frá Ólafsvík með þátttöku fjögurra veiðimanna sem kepptu á tveimur bátum. Mótið var léttlínukeppni var sem keppendum var fengin 15 punda lína og lögð áhersla á að veiða sem stærstu þorska og ufsa. Sömu reglur um lengdir fiska sem og stigagjöf giltu í léttlínukeppninni eins og í Íslandsmeistaramótinu. Alls veiddust 76 fiskar og þar af 40 stórir fiskar þ.e. yfir 76 cm. Þess má geta að 11 stórufsar (yfir 101 cm.) veiddust og 1 stór þorskur (yfir 101 cm.).
Innanfélagsmeistari varð Helgi Bergsson með 100% skor, 33 fiska og 550 aflastig. Í öðru sæti varð Þórir Sveinsson með 100% skor, 20 fiska og 152 aflastig. Í þriðja sæti varð Kristbjörn Rafnson með 65,79% skor, 17 fiska og 100 aflastig.

EFSA Iceland Open 2020 • Olafsvík 29th – 31st May • Result
EFSA Iceland Open 2020 was held Friday 29th and Saturday 30th May from Olafsvik with 7 anglers on 2 boats targeting Cod and Coalfish and fishing six hours a day. The venue was a preparation for the EFSA European Species Championship to be held from Olafsvik at the end of May 2021. We were trying out the fishing rules and the point system that was divided into four length categories, 35-55cm, 56-75cm, 76-100cm and 101cm and longer. Total catch was 823 fish, 626 Cod and 197 Coalfish and most of the fish was in the two lower length categories.
The longest Cod was 109cm and the longest Coalfish 107cm.
On Sunday 31st May we fished on two boats with four anglers using the same rules and point system as the two days before but with a 15pound (6,8 kg.) line targeting big Cod and Coalfish. Total catch was 76 fish and most of them over 75cm. We got 11 large Coalfish, the biggest was 125cm and 1 large Cod 111cm.

Síðast uppfært: Miðvikudagur, 03 Júní 2020 22:14